Myndir af fólkinu okkar og heimilinu
Birt af Skaftholt
Í Skaftholti í Skeiða-og Gnúpverjahreppi er að finna einstakt samfélag sem hefur það markmið að búa fólki með fötlun þroskavænlegt umhverfi til að halda heimili og stunda vinnu. Skaftholt var stofnað árið 1980. Frá upphafi hefur verið lögð stund á sjálfbæra lífræna/lífeflda ræktun og landbúnað sem byggður er á félagslegum grunni. Í Skaftholi búa og starfa 8 einstaklingar með þroskahömlun á tveimur heimilum. Í Skaftholti er rekið kúabú, hænsnabú og stundaður fjárbúskapur. Stefnan er að samfélagið sé sjálfu sér nægt um allar bús- og garðyrkuafurðir sem hægt er að framleiða á staðnum. Fjölbreytt grænmetisræktun fer einnig fram í þremur gróðurhúsum og á útisvæði . Allar afurðir frá Skaftholti eru lífrænt vottað af Vottunarstofunni Tún. Einnig er stunduð vinna á vinnustofum sem tengjast búskapnum og ræktuninni m.a. við að fullvinna afurðir t.d. ostagerð, jurtavinnsla, smíði og ullarvinna. Skoða allar færslur eftir Skaftholt
You must be logged in to post a comment.